Eftirmiðdegi og kaffiskeiðar
Á eftir fer ég í helgarferð til Grenoble. Hjá heilbrigðu fólki hefði staðið "Á morgun …", en við vitum öll hvers konar bransi er stundaður hér. Eftir fjóra klukkutíma þarf ég að vakna og taka lest til að taka rútu einhvert, sem væri allt í lagi ef ég hefði ekki farið út að drekka með félaga mínum eftir kóræfingu okkar.
Ó, þú spillta líf.
Ég myndi lofa að eyða helginni í heilbrigðari hluti, en ég veit að þeir verða miklu sóðalegri en þetta. Miklu, miklu sóðalegri.
Miklu.